Um Maníu
Félagið var stofnað þann 10. október 2005, á Alþjóða geðheilbrigðisdaginn. Að stofnun þess kom hópur fólks sem fannst þurfa málsvara fyrir fólk með geðraskanir innan HÍ. Félagið er með öllu ópólitískt og gengur þvert á allar deildir Háskólans. Allir í háskólanum eru velkomnir í Maníu, hvort sem þeir eru haldnir geðröskun eða ekki. Sameiginlegt áhugamál okkar allra er að stuðla að góðu geðheilbrigði innan Háskóla Íslands.

Markmið félagsins eru:

Að standa fyrir opinni og upplýstri umræðu innan Háskóla Íslands um geðraskanir og geðheilbrigði.

Að starfa með háskólayfirvöldum í að reyna að bæta þjónustu við nemendur og starfsmenn HÍ með geðraskanir.

Að stuðla að samstarfi við nefndir og stofnanir sem fara með málefni sem varða fólk með geðraskanir.