|
1. gr.
Nafn félagsins er Manía – geðverndarfélag innan Háskóla Íslands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Stofnfélagar þess eru:
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, kt: 260981-3239, Engihlíð 14, 355 Ólafsvík.
Guðný Elísa Guðgeirsdóttir, kl: 211081-5069, Sörlaskjól 8, 107 Reykjavík
Sigursteinn Másson, kt: 110867-4769, Álfhólsvegur 52, 200 Kópavogi
Tinna Mjöll Karlsdóttir 170282-3619, Barmahlíð 17, 550 Sauðárkrókur
2. gr.
Starfstímabil er skólaárið, frá ágúst til maí.
3. gr.
Markmið félagsins eru:
1. að standa fyrir opinni og upplýstri umræðu innan Háskóla Íslands um geðraskanir og geðheilbrigði.
2. að vinna með háskólayfirvöldum að bæta þjónustu við nemendur og starfsmenn með geðraskanir.
3. að stuðla að samstarfi við nefndir og stofnanir sem fara með málefni sem varða háskólafólk með geðraskanir.
4. gr.
Allir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands geta gerst félagar. Félagi telst sá sem er á póstlista Maníu.
5. gr.
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins.
6. gr.
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir félagsmenn. Aðalfundur skal vera haldinn í mars ár hvert. Boða skal til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara og fundarboð tilkynnt með pósti til félagsmanna. Stjórn fer með ákvörðunarvald í málefnum félagsins á milli aðalfunda.
7. gr.
Á aðalfundi skal kjósa nýja stjórn félagsins. Allir nemendur Háskóla Íslands geta gefið kost á sér í stjórn. Framboðum skal skilað til fráfarandi stjórnar minnst tveimur dögum fyrir auglýstan aðalfund. Í atkvæðagreiðslu gildir einfaldur meirihluti.
8. gr.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar
- Kosning formanns
- Kosning fjögurra stjórnarmanna
- Kosning þriggja varamanna
- Önnur mál
9. gr.
Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á aðalfundi með atkvæðum ¾ fundarmanna. Eignir félagsins munu við það vera í vörslu Jafnréttisnefndar Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fjármagnið skal renna til geðverndarmála innan Háskóla Íslands ef félagið tekur ekki til starfa á ný innan tveggja ára.
III. Annað
10. gr.
Lagabreytingar verða einungis gerðar á þar til gerðum fundi og skal boða til hans með minnst viku fyrirvara. Í fundarboði skulu lagabreytingar kynntar. Að öðru leyti gilda sömu lög um lagabreytingarfund og aðalfund.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi, með fyrirvara um breytingar á næsta aðalfundi
|