Manía fær nýtt veffang.

Nú erum við í Maníu að hefja okkur til flugs að nýju en starfsemin hefur legið niðri um tíma.

Fljótlega verður auglýst nýtt veffang og fundur þar sem starfsemi Maníu verður kynnt.

Tökum með glöðu geði við ábendingum og tillögum.

Ragnheiður J. Sverrisdóttir

rjs2@hi.is

27/1/2012

Er hjálp að fá? Aðgengi og viðhorf til heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Lýðheilsa fyrr og nú.

Fyrirlestrarröð Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands.

Heilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum samfélagsins. Á fyrirlestrinum verður fjallað um svæðisbundið skipulag heilbrigðisþjónustu á Íslandi, um þróun þess og áhrif á heilsufar og notkun heilbrigðisþjónustu eftir búsetusvæðum. Þá verður geðheilbrigðisþjónustan rædd sérstaklega, notkun og viðhorf til hennar meðal Íslendinga, upplifun notenda og leiðir til úrbóta.

Hefst:   27/10/2011 - 12:00
Lýkur:  27/10/2011 - 13:15

Nánari staðsetning: Í sal Þjóðminjasafns 

Fyrirlesarar: 
  • Sigríður Haraldsdóttir, sviðstjóri Heilbrigðisupplýsingasviðs við Embætti landlæknis og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum:
    Hvernig er heilsufar og notkun heilbrigðisþjónustu eftir búsetu?
  • Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Bostonháskóla: Hvað skal gera? Viðhorf Íslendinga til notkunar á geðheilbrigðisþjónustu í alþjóðlegu samhengi
  • Auður Axelsdóttir, fostöðumaður Geðheilsu-eftirfylgdar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Hugaraflskona: Hvar, hvernig, hvers vegna?

  Fundarstjóri: Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs

 

26/10/2011

Opið málþing með Daniel Fisher geðlækni, mánudaginn 20. júní

 

Hugarafl í samstarfi við Unghuga og Maníu stendur fyrir opnu málþingi mánudaginn 20. júní 2010 kl.16.00-18:00 í Skriðu, Háskóla Íslands við Stakkahlíð (áður Kennaraháskólinn).

 

Þar gefst færi á að hitta Dr. Daniel Fisher geðlækni við Riverside geðheilsumiðstöðina í Wakefield, Massachusetts.

Daniel, eða Dan eins og hann kýs að kalla sig, náði bata af geðklofa. Áður en hann varð geðlæknir lagðist hann nokkrum sinnum inn á geðsjúkrahús. Hann er einn fárra geðlækna í Bandaríkjunum sem ræðir opinberlega um hvernig honum batnaði af geðsjúkdómi sínum og er fyrirmynd fyrir aðra sem berjast við að ná sér. Hefur hann helgað líf sitt því að eyða goðsögninni um að ekki sé hægt að ná sér af geðröskunum. Bati hans og starf á þessu sviði urðu til þess að hann var valinn í nefnd Hvíta hússins um geðheilsu árið 2003.

Notendum geðheilbrigðisþjónustunnar, aðstandendum þeirra, fagfólki og áhugamönnum um geðheilbrigðismál hafa tækifæri til að spyrja Dan um sýn sína á bata, hlutverk notenda og ný viðhorf og úrræði í þessum málaflokki.

 


Aðgangur að fundinum er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína til hugarafl@hugarafl.is.

 

18/6/2011

Robert Whitaker á Íslandi laugardaginn 19. febrúar 2011


Hugarafl í samstarfi við Maníu og Unghuga stendur fyrir málþingi, laugardaginn 19. febrúar, kl. 14:00 til 17:00 í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð í sal Skriðu.
 
Aðalræðumaður verður Robert Whitaker blaðamaður og rithöfundur sem hefur verið tilnefndur til Pulitzer verðlaunanna. Bók hans „Anatomy of an Epidemic“ sem kom út á síðasta ári hefur vakið verðskuldaða eftirtekt.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. 

Dr. Steindór Erlingsson vísindasagnfræðingur og Hrannar Jónsson félagar í Hugarafli munu einnig flytja stutt ávörp. Opið verður fyrir fyrirspurnir til Whitaker eftir erindi hans.

 
7/2/2011

Fyrirlestur Geðfræðslunnar 26. janúar

Manía óskar öllum gleðilegs nýs árs og kynnir fyrirlestur Geðfræðslunnar 26. janúar næstkomandi í stofu 106 í Odda kl. 12:00. Fyrirlesarar verða Þórey Guðmundsdóttir og Hrannar Jónsson en þau eru meðlimir í Hugarafli, félagi notenda geðheilbrigðisþjónustunnar sem eru í bata og fagfólks.                               Geðfræðslan er fræðsluverkefni sem Hugarafl hefur sett á laggirnar með það markmið að draga úr fordómum gagnvart geðröskunum. Einnig er stuðlað að fræðslu um geðrækt, forvarnir og bataleiðir.

*Texti fenginn af www.hugarafl.is/gedfraedsla-hugarafls        

 

Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn standi yfir í um 45 mínútur

 

Manía

www.mania.is

 

Mania presents Geðfræðslan’s lecture next Wednesday, January 26th, 12:00 at Oddi in room 106. Lecturers will be Þórey Guðmundsdóttir and Hrannar Jónsson. They are members of Hugarafl, an association formed by four people, recovering from mental illness, and an occupational therapist with a lot of experience working within the psychiatric health care system.

 

Geðfræðslan is an educational program, formed by Hugarafl, which aims to reduce prejudice towards mental illness and educate about mental health, prevention and ways to recovery.

*Text borrowed from www.hugarafl.is/English-

 

The lecture is approximately 45 minutes

 

Manía

www.mania.is

 

24/1/2011



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Eldri