Hvað er til ráða?
Geðheilbrigði er stór en stórlega vanmetinn þáttur í almennu heilbrigði manneskju. Almenn vitundarvakning hefur þó orðið í þessum málum undanfarin ár. Við HÍ er nýstofnað geðverndarfélag, MANÍA, sem hefur það að meginmarkmiði að aðstoða nemendur á allan mögulegan máta sem telja sig búa við skert heilbrigði á þessu sviði og benda þeim á leiðir sem eru færar.

Allir sem finna til vanlíðunar af einhverju tagi geta leitað til félagsins og mun MANÍA leitast við að beina þeim inn á þær brautir sem eru færar fyrir hvern og einn eftir bestu getu.

Hvert er hægt að leita?
Ef þú átt við geðræna erfiðleika að stríða skaltu umfram allt ekki einangra þig. Aðilar sem gætu hjálpað þér eru m.a.:

Námsráðgjöf Háskóla Íslands
Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut sími: 525-4315
Við NHÍ er boðið upp á skammtíma meðferð ef nemendur eiga við sálræna erfiðleika að stríða meðan á námi stendur. Í slíkri meðferð er vandinn skilgreindur og nemendur fá aðstoð við að skilja eigin erfiðleika. Síðan er leitað lausna í samráði við nemandann sem bætt geta líðan hans og nám. Starfsfólk NHÍ getur einnig veitt þeim nemendum aðstoð sem eiga við langvarandi tilfinningalegan vanda að stríða. Slík þjónusta getur farið fram innan stofnunarinnar eða nemendur geta fengið aðstoð við að finna hvert sé gagnlegast fyrir þá að leita sér hjálpar

Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eða félagsþjónustur sveitafélaga
Á þjónustumiðstöðunum er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Á þeim er hægt er að sækja ýmis konar þjónustu sem gagnast getur einstaklingum sem eiga við geðræna erfiðleika að stríða m.a. félagslega ráðgjöf og ýmsan stuðning. Félagsþjónustur sveitafélaga veita einnig félagslega ráðgjöf og stundum bjóða þær upp á sálfræðiþjónustu.

Nánari upplýsingar inni á felagsthjonustan.is og heimasíðum sveitafélaga

Hjálparsími Rauða krossins 1717
Gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana. Tilgangurinn með Hjálparsíma Rauða krossins er að vera til staðar fyrir þá sem finnst þeir vera komnir í öngstræti en vilja þiggja aðstoð til að sjá tilgang með lífinu.
Auk þess að taka við sjálfsvígssímtölum getur Hjálparsíminn haft víðtækara hlutverk, til dæmis í kjölfar stóráfalla eða sem almennur neyðar- og upplýsingasími Rauða krossins.
Starfsmenn og sjálfboðaliðar svara í Hjálparsíma Rauða krossins. Þeir hafa reynslu af að svara slíkum símtölum og fá reglulega þjálfun í samvinnu við geðsvið Landsspítala háskólasjúkrahúss og Landlæknisembættið.

ADHD samtökin
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavik sími: 581 1110 Samtök fyrir fólk með athyglisbrest með eða án ofvirkni

Geðhjálp
Túngata 7, 101 Reykjavík s: 570-1700
Sjálfshjálparhópar eru starfandi hjá Geðhjálp að Túngötu 7 í Reykjavík. Þar kemur fólk saman vegna sameiginlegrar reynslu í glímu við geðrænan vanda. Lögð er áhersla á samkennd, virðingu, að miðla reynslu, að hlusta og að eiga góða stund saman. Fólk hittist á jafningjagrunni og allar upplýsingar sem koma fram innan hópanna eru trúnaðarmál.
- Félagshópur ungs fólks
- Félagsfælnihópur
- Geðhvarfahópur
- Þunglyndishópur
Í húsnæði félagsins er einnig félagsmiðstöð og hægt er að nálgast dagskrá hennar á heimasíðu félagsins.
Einnig er unnt að fá viðtal hjá ráðgjafa Félagsþjónustunnar annan hvern miðvikudag kl. 14:00-16:00 hér á Túngötu 7.
Tímapantanir eru hjá Jóhönnu á skrifstofu Geðhjálpar eða í síma 570-1700

Hugarafl
Hugarafl var stofnað í júní 2003 af notendum í bata, sem átt hafa við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum. Hópurinn starfar við miðstöðina Geðheilsa-eftirfylgd/iðjuþjálfun í Bolholti 4, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis.
Meðlimir Hugarafls vilja miðla reynslu sinni af geðheilbrigðiskerfinu með öðrum sem láta sig málefnin varða, hópurinn vill hafa áhrif á þjónustu og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir. Heimasíðan er: www.hugarafl.is

Heilsugæslustöðvar
Hlutverk Heilsugæslunnar er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Nánar um heilsugæslustöðvar Reykjavíkur á hr.is

Læknavaktin
Læknavaktin Smáratorgi 1, Kópavogi - sími 1770
Móttakan á Smáratorgi er opin frá 17 til 23:30 alla virka daga, helgar og hátíðisdaga frá kl 09:00 til 23:30 Veitt er ráðgjöf í síma og tekið á móti vitjanabeiðnum í síma 1770 allar virka daga kl. 17:00 til 08:00 og allan sólarhringinn um helgar og hátíðisdaga

Spegillinn
Megintilgangur samtakanna er að beita sér fyrir fræðslu, forvörnum og meðferðarúrræðum fyrir átröskunarsjúklinga. Spegillinn er hagsmunasamtök fyrir Lystarstol/Anorexiu og Lotugræðgi/Bulimiu. Sjálfshjálpargrúbba hefur verið starfrækt fyrir aðstandendur anorexiu- og bulimiusjúklinga. Heimasíðan er: www.spegillinn.is

FORMA- samtök átröskunarsjúklinga
Heimasíða: forma.go.is/

Bráðamóttaka geðdeildar Landsspítalans
Móttakan er í geðdeildarbyggingu LSH við Hringbraut
Símar: 543 4050 á þeim tíma sem opið er, annars um skiptiborð 543 1000 eða í síma vakthafandi hjúkrunarfræðings 896 1539. Bráðaþjónustan er opin 8:00-23:00 virka daga13:00-21:00 um helgar og alla lögboðna frídaga. Í neyðartilvikum utan þessa tíma geta sjúklingar leitað til almennu bráðamóttökunnar á Landspítala Hringbraut.
Móttaka eru öllum opin sem eiga við bráða geðræna erfiðleika að stríða. Í bráðamóttöku fer fram fyrsta greining og sjúklingnum síðan vísað áfram til frekari meðferðar. Stundum getur viðkomandi þurft á innlögn að halda en að öðrum kosti er vísað til móttökuteymis göngudeildar eða áfengis- og vímuefnateymis eða til úrræða utan stofnunarinnar. Viðtöl í bráðaþjónustu eru að öllu jöfnu fremur stutt. Sjúklingum er ráðlagt að koma á dagvinnutíma sé þess nokkur kostur þar sem bráðamóttakan er þá betur mönnuð. Sjálfsskaði: Ef einstaklingur hefur skaðað sig er best að hann fari strax á bráðamóttöku sjúkrahússins í Fossvogi. Vaktlæknir geðdeildar fer þangað og metur sjúklinginn um leið og ástand hans leyfir.


Ýmiskonar 12 spora hópar t.d.
- AA – Samtökin - Alchoholics Anonymous heimasíða: aa.is
- Al-Anon samtökin - Heimasíða: al-anon.is félagsskapur karla, kvenna og unglinga sem hafa orðið fyrir áhrifum af drykkju ættingja eða vinar
- OA – samtökin - Overeaters Anonymous heimasíða: oa.is
- GA – samtökin - Gamblers Anounymous upplýsingar á: spilavandi.is
- NA – samtökin - Narcotics Anonymous heimasíða: nai.is
- EA – samtökin – Emotions Anonymous pósthólf 943, 121 Reykjavík. Samtökin geta hentað fólki sem vill ganga 12 sporaleiðina en er ekki endilega með skilgreinda fíkn.