Um Maníu
Félagið var stofnað þann 10. október 2005, á Alþjóða geðheilbrigðisdaginn. Að stofnun þess kom hópur fólks sem fannst þurfa málsvara fyrir fólk með geðraskanir innan HÍ. Félagið er með öllu ópólitískt og gengur þvert á allar deildir Háskólans. Allir í háskólanum eru velkomnir í Maníu, hvort sem þeir eru haldnir geðröskun eða ekki. Sameiginlegt áhugamál okkar allra er að stuðla að góðu geðheilbrigði innan Háskóla Íslands.

Markmið félagsins eru:

Að starfa með Háskólayfirvöldum í að reyna að bæta þjónustu við stúdenta og starfsmenn HÍ með geðraskanir.

Að standa fyrir opinni og upplýstri umræðu innan Háskóla Íslands um geðraskanir og geðheilbrigði.

Að stuðla að samstarfi við nefndir og stofnanir sem fara með málefni sem varða fólk með geðraskanir, hérlendis sem erlendis.

Að halda uppi skipulögðu félagsstarfi fyrir meðlimi.