Nú er það orðið ljóst að aðalfundur Maniu verður haldinn næstkomandi föstudag kl 14:00 í stofu 204 í Lögbergi.
Allir velkomnir
Þeir sem hafa áhuga að bjóða sig fram í stjórn hafi samband við Tinnu
tmk@hi.is
5/4/2006
Jæja, nú er svo komið að því að hádegiskynning Maníu hefst.
Félagið Manía kemur til með að sitja á borðum í hádeginu frá kl 12:00-13:00 í nk viku að kynna starfsemina.
Planið er sem hér segir:
Mánudagur -Árnagarður
Þriðjudagur- Lögberg
Miðvikudagur -Háskólabíó
Fimmtudagur - Askja
Maníubolir verða til sölu á staðnum, 1000 kr stykkið.
Á föstudaginn kl 14:00 verður svo aðalfundur félagsins. Nánari upplýsingar um staðsetningu fundarins kemur síðar.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar
- Kosning formanns
- Kosning fjögurra stjórnarmanna
- Kosning þriggja varamanna
- Önnur mál
Ný stjórn Maníu verður kosin á fundinum; er öllum frjálst að bjóða sig fram.
Eftirtalin embætti eru í boði:
- formaður
- varaformaður
- gjaldkeri
- ritari
- meðstjórnandi
- 3 varamenn
Ef þið viljið bjóða ykkur fram, sendið þá póst á
tmk@hi.is
Góða helgi
31/3/2006
Jæja, nú er svo komið að því að ég komst inn á síðuna til þess að breyta rótera aðeins í henni.
Sl. föstudag stóð Manía fyrir Gleðidegi og málþingi. Það gekk vonum framar og viljum við koma sérstöku þakklæti til Hugarafls, Geðhjálpar og Þórunnar Egildóttur sem heiðruðu okkur með nærveru sinni.
Einnig viljum við þakka Samkaup fyrir veitingastyrkinn sem var vel þeginn :)
Í næstu viku verður Manía í helstu byggingum á háskólasvæðinu að kynna sig og sína, kynningin verður í hádeginu og verður auglýst á morgun hvar við verðum og hvenær.
Allra bestu kveðjur
Tinna
30/3/2006
Nú eru liðnir rúmir 3 mánuðir síðan félagið Manía var stofnað með pompi og prakt í stofu 101 í Odda. Félagið var stofnað á Alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn og markmið þess er að bæta hag fólks (kennara, stúdenta og stafsfólks) Háskóla Íslands, opna umræðuna um geðraskanir og sporna við fordómum. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan félagið var stofnað, við í stjórn Maníu höfum svo sannarlega ekki setið auðum höndum heldur höfum við unnið markvisst að okkar málum (eins og unnt var). Því miður tekur það mikinn tíma að vinna praktísku málin og eru veggirnir í kerfinu margir og erfiðir viðureignar. Ég ætla ekki að fara útlista þeim vandræðum neitt frekar, nú er að hefjast nýr tími, nú er kominn tími að fá félaga í félagið og hefja starfsemina út á við.
Ég hvet ykkur öll til þess að skrá ykkur í félagið og taka þátt í starfinu. Það eru spennandi tímar framundan.
Bestu kveðjur
Tinna Mjöll
30/1/2006
Nýrri
Eldri