Haust 2007

Núna fer önnin að byrja (eða þegar byrjuð hjá mörgum) og Manía fer að komast á skrið eftir gott sumarfrí. Ef einhverjir hafa áhuga á að vera með í stjórn eða bara fylgjast með því sem við erum að gera þá endilega sendið okkur póst. Netfangið er maniapostlisti@gmail.com

Bestu kveðjur. 
Kristín, formaður Maníu. 

29/8/2007

Geðrækt - jafn mikilvæg og líkamsrækt!

Fimmtudaginn 22. mars verður Ebba með fyrirlestur um geðrækt. Ebba er forstöðuliðþjálfi á geðsviði LHS og lektor við H.A. Fyrirlestrar hennar eru líflegir og er titill fimmtudagsfyrirlestursins Geðrækt - jafn mikilvæg og líkamsrækt! Einnig mun Sigrún Valgarðsdóttir, jafnréttisfulltrúi H. Í. , kynna og vekja athygli á verklagsreglum Háskólans. 

Manía hvetur alla að mæta á fyrirlesturinn sem verður í hátíðarsal Aðalbyggingar kl 12. 


Sjáumst á fyrirlestrinum! 

-Manía 

3/15/07 

15/3/2007

Þjáist þú af prófkvíða?

Minnum á að þann 7. mars byrjar námskeið um prófkvíða þar sem kenndar eru hagnýtar aðferðir við að hafa áhrif á kvíða á uppbyggilegan máta. Þátttakendur mæta í 5 skipti miðvikudagana 7., 21., 28. mars, 4. og 11 apríl, milli kl. 9.30 og 11.30. Það er Námsráðgjöf HÍ sem stendur fyrir námskeiðinu og stendur skráning yfir á skrifstofu hennar í Félagsstofnun stúdenta og í s. 525-4315nbsp;


Bestu kveðjur, 
Stjórn Maníu 

1/3/2007

Manía 1 árs!!!!

Þriðjudaginn 10. október er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Þá er líka liðið eitt ár frá stofnun MANÍU sem er geðverndarfélag innan Háskóla Íslands. Meginmarkmið félagsins er að standa fyrir opinni og upplýstri umræðu innan Háskólans um geðraskanir og geðheilbrigði. Ásamt því að stuðla að samstarfi við nefndir og stofnanir innan Háskólans. Af þessu tilefni ætlum við að standa að fyrirlestri um kvíða og afleiðingar hans. 

 

Fyrirlesturinn heldur Berglind Guðmundsdóttir en hún lauk B.A. námi í sálfræði frá H.Í. Berglind hóf framhaldsnám í University at Buffalo, State University of New York árið 2000. Þar útskrifaðist hún nýlega með doktorsgráðu. Hún hefur sérhæft sig í kvíðaröskunum og áfallastreitu og stundað rannsóknir á afleiðingum áfalla. Í dag starfar hún hjá Sálfræðiþjónustu LSH, á Slysa- og bráðasviði. 


Staðsetning: Árnagarður, stofa 311. 
Tími: Þriðjudagur, kl 12 – 13. 
Fyrirlesari: Berglind Guðmundsdóttir, Ph.D. 
Umræða: Kvíði. 

Sjáumst 
Manía 

9/10/2006

Ný stjórn og nýtt skólaár

Ný stjórn Maníu var kosin á dögunum og hana skipa eftirfarandi: 

Kristín Ósk -formaður 
Karl Jónas -varaformaður 
Árni Guðmundsson -ritari 
Vilhjálmur Hjaltalín -gjaldkeri 
Tinna Mjöll -vefstjóri 

Þann 10 okt næstkomandi er eins árs afmæli Maníu, að sjálfsögðu ætlum við að halda upp á daginn og verður dagskráin auglýst síðar. 

En það er margt spennandi framundan í vetur og vonumst við til þess að fá sem flesta með okkur í lið. 

Bestu kveðjur  4/10/2006



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri