Afleiðingar áfalla og meðferð þeirra

Félag um hugræna atferlismeðferð verður með málþing um afleiðingar áfalla og meðferð þeirra. Málþingið er öllum opið og verður haldið í sal Þjóðminjasafnsins 15. febrúar 2008 kl 13 - 17. Aðgangseyrir á málþingið er 1000 krónur. 

Frummælendur verða:  

Margrét Blöndal, hjúkrunarfræðingur: Sálræn skyndihjálp í kjölfar áfalla 

Sigfinnur Þorleifsson, prestur: Sálgæsla, sérleiki og sviplegir atburðir 

Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur: Í samræðum við heilann um áfallastreituröskun 
 
Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur: Meðferð við áfallastreituröskun og öðrum afleiðingum áfalla 
 
-Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.ham.is 


kv. Manía 

11/2/2008

Áfallastreita

Á miðvikudaginn, þann 6. febrúar, verður haldinn fyrirlestur á vegum MANÍU í Háskóla Íslands. Þar mun Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur halda erindi um áfallastreitu. 
Berglind er með doktorsgráðu í Klínískri Sálfræði frá Ríkisháskólanum í Buffalo í New York-ríki í Bandaríkjunum og hefur hún sérhæft sig í afleiðingum áfalla og meðferð við áfallastreituröskun og stundað rannsóknir á því sviði. Í dag starfar hún á Áfallamiðstöð LSH. 

Staðsetning: Aðalbygging, stofa 225. 
Tími: Miðvikudagur, kl 12 - 13. 
Fyrirlesari: Dr. Berglind Guðmundsdóttir 
Efni: Áfallastreita. 

Hvetjum alla áhugasama til að mæta! 
Stjórn MANÍU. 

 

6/2/2008

Loksins loksins !

Loksins er heimasíða Maníu komin í lag. 

Í haust stóð Manía fyrir tveimur fyrirlestrum í HÍ. 

Sá fyrri var haldinn 4.október en þar komu tveir menn fram og 
töluðu um reynslu sína af geðröskunum. Annars vegar var það Bergþór Grétar Böðvarsson sem er fulltrúi notenda á geðsviði LSH. Fyrirlestur hans bar heitið "Hver veit hvernig mér líður ef enginn trúir mér ?" 
Hins vegar talaði Hallgrímur Björgvinsson um reynslu sína en hann er nemandi við HÍ. Erindi sitt kallaði Hallgrímur "Allt um allt". Báðir fluttu þeir afar athyglisverða fyrirlestra um eigin raunir og færum við þeim bestu þakkir fyrir. 

Seinni fyrirlesturinn var haldinn 1.nóvember og var gestur okkar að þessu sinni Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur. Anna fjallaði um nýjung í sálfræðimeðferð sem hefur að undanförnu verið að skjóta rótum hér á landi og kallast mindfulness (oftast nefnd gjörhygli á íslensku). 
Áhugasömum er bent á bókina Mindufulness based cognitive therapy for depression: A new approach to preventing relapse. 
http://www.amazon.com/Mindfulness-Based-Cognitive-Therapy-Depression-Preventing/dp/1572307064/ref=sr_1_19/102-9867210-5160145?ie=UTF8&s=books&qid=1193921876&sr=8-19 

Kveðja, 
Manía. 

11/11/2007

Skilningur rýfur félagslega einangrun

(Grein birt í Morgunblaðinu, 9. október, 2007)

„Breytt samfélag, flóknari samfélagsgerðir og áhrif marbreytilegrar menningar“ er yfirskrift Alþjóða geðheilbrigðisdagsins í ár. Dagurinn verður haldinn hátíðlega í ellefta sinn á Íslandi næstkomandi 10. Október. Í tilefni af því vil ég ræða lítillega um geðheilbrigði og um leið kynna geðverndarfélag við Háskóla Íslands.

Þjóðfélagið í dag einkennist af auknum kröfum þess um að lifa við bestu lífsgæði sem völ er á. Vegna aukinna krafa gerum við meiri væntingar til okkar sjálfra sem og annarra. Margir óska sér lengri sólarhring til að komast yfir öll þau verkefni sem þarf að ljúka til að vera fremst í lífsgæðakapphlaupinu. Mikill hraði þjóðfélagsins myndar streitu og álag sem getur reynt á þolþröskuld fólks. Ef álagið er of mikið og varir yfir lengri tíma er eðlilegt að verkefni verða ekki kláruð og væntingar því ekki uppfylltar. Mikilvægt er að vera meðvitaður um getu sína og hafa raunhæfar væntingar svo hægt sé að vera sáttur við sjálfan sig.

Sem sálfræðinemi hef ég öðlast þekkingu á ýmsum geðröskunum og meðferð þeirra. Hins vegar hefur starfsreynsla og félagsstörf á sviði geðheilbrigðismála gefið mér enn frekari skilning á hvað geðraskanir eru. Ég hef lært að allir þeir sem eiga við erfiðleika að stríða hafa það sameiginlegt, að þeir þurfa skilning annarra og njóti virðingar til að geta tekist á við erfiðleikana.

Að búa við félagslega vellíðan er einn þáttur af mörgum sem stuðla að góðu geðheilbrigði. Til að öðlast slíka vellíðan þarf að uppfylla sínar eigin væntingar og annarra. Of miklar kröfur koma í veg fyrir að væntingar verði uppfylltar og því fylgir streita sem hefur áhrif á andlega líðan.

Margir lenda í því að finna sig ekki í neinum félagshópi og draga sig því til hlés frá félagslífinu. Sumir óttast að sig skorti samskiptahæfileika og aðrir telja sig jafnvel að þeir hafi ekki áhuga á félagslegum samskiptum. Oftar en ekki er andleg vanlíðan á borð við kvíða eða þunglyndi orsök slíkrar hugsunar. Veikindi geta breytt hegðun og hugsun fólks og oft er erfitt að fóta sig þegar mætt er litlum skilningi. Vanskilningur annarra á erfiðleikunum viðheldur vítahring félagslegrar einangrunar. Mikilvægt er að halda sig ekki til baka því það getur viðhaldið kvíða og þunglyndi.

Á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum 2005, kom hópur fólks saman sem hafði það sameiginlega áhugamál að stuðla að góðu geðheilbrigði innan Háskóla Íslands. Stofnað var geðverndarfélagið Manía. Félagið er öllum opið, hvort sem þeir eru haldnir geðröskun eða ekki. Stefna félagsins er að standa fyrir opinni umræðu um geðvernd, efla samstöðu og stuðla að góðu geðheilbrigði innan Háskóla Íslands. Manía er vettvangur til að rjúfa félagslega einangrun og allir sem finna til vanlíðan af einhverju tagi geta leitað til félagsins. Meðlimir Maníu koma þá til móts við hvern og einn eftir bestu getu.

Með fræðslu er hægt að dýpka þekkingu á margbreytileika geðraskana. Með skilningi og virðingu má styðja stóran og oft gleymdan hluta af þjóðfélaginu.

Höfundur: Kristín Ósk Ingvarsdóttir

27/10/2007

Ný stjórn Maníu

Ný stjórn Maníu var mynduð í byrjun september og hana skipa eftirfarandi: 

Kristín Ósk Ingvarsdóttir formaður 
Trausti Traustason varaformaður 
Sesselja María Mortensen ritari 
Vilhjálmur Hjaltalín Jónsson gjaldkeri 
Berglind Óladóttir vefstjóri 
Ragnheiður J. Sverrisdóttir meðstjórnandi 

Allir sem hafa áhuga á viðfangsefnum félagsins eru hvattir til að hafa samband og skrá sig í félagið. 

 

19/9/2007



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri