Kæru stúdentar og starfsmenn Háskóla Íslands

Manía er geðverndarfélag innan Háskóla Íslands, ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á geðheilbrigði og málefnum háskólafólks með geðraskanir.

Markmið félagsins er að vinna að bættri þjónustu við stúdenta og starfsmenn HÍ meðal annars með því að standa fyrir opinni og upplýstri umræðu um geðheilbrigði og geðraskanir og stuðla að samstarfi við nefndir og stofnanir sem fara með málefni háskólafólks með geðraskanir.

Allir í háskólanum eru velkomnir í Maníu, hvort sem þeir eru haldnir geðröskun eða ekki. Sameiginlegt áhugamál okkar allra er að stuðla að góðu geðheilbrigði innan Háskóla Íslands.

Félagið opnaði nýverið þessa nýju heimasíðu og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér hana og félagið. Um leið viljum við óska eftir fólki til starfa með stjórninni, greinum, reynslusögum, hugmyndum og öllu því sem hugsanlega gæti átt erindi við félagið og heimasíðu þess.

Einnig viljum við benda fólki á að leita til félagsins ef það telur sig hafa orðið fyrir einhverskonar mismunun innan skólans vegna geðrænna erfiðleika.

Það kostar ekkert að gerast félagi í Maníu. Þið farið einfaldlega inn á póstlistann og skráið ykkur.

Framundan hjá félaginu er meðal annars:

-skipulagning sjálfshjálparhóps innan HÍ í samvinnu við sálfræðing, en fyrirhugað er að stofna slíkan hóp í byrjun haustannar 2009,
-opnir fundir þar sem fólki gefst tækifæri til að koma og ræða við stjórn félagsins,
-fyrirlestrar þar sem einstaklingar með geðraskanir munu lýsa reynslu sinni,
-aðalfundur þar sem ný stjórn verður kosin.

Með bestu kveðju,
stjórn Maníu.

24/2/2009

Vorönn 2009

Jæja, þá er nám hafið á ný eftir jólafrí og flestir að komast aftur í námsgírinn. Manía hefur á sl. önn verið í undirbúnings- og skipulagsstarfi þar sem starfssemi félagsins hefur verið í endurskoðun og mótun. Félagið fjárfesti í nýrri heimasíðu þar sem fyrri heimasíða hafði gert því lífið leitt. Sérstakar þakkir fær Valdimar Örn Matthíasson fyrir óeigingjarnt starf sitt en hann smíðaði vefinn fyrir félagið.

02.02.09

Ný stjórn

Ný stjórn Maníu var kjörin nú á dögunum. Hana skipa eftirfarandi: 

Berglind Óladóttir formaður
Sesselja María Mortensen varaformaður
Herdís Eiríksdóttir ritari
Ragnheiður J. Sverrisdóttir gjaldkeri

Sjá nánari upplýsingar um stjórn undir flipanum Félagið / Stjórn.

5/4/2008

Kosningar

Þann 26. mars verður kosið í nýja stjórn Maníu. Við leitum að áhugasömu fólki sem er tilbúið að taka þátt í starfi félagsins og efla geðvernd innan veggja Háskóla Íslands. 

Félagið var stofnað á Alþjóða geðheilbrigðisdaginn, 10. október árið 2005. Manía er ópólitískt félag og gengur þvert á allar deildir háskólans. Okkar sameiginlega áhugamál er að stuðla að góðu geðheilbrigði í Háskóla Íslands og því eru allir velkomnir í félagið, hvort sem þeir eru haldnir geðröskun eða ekki. Núverandi stjórn hefur unnið við að byggja upp félagið og nú er kominn tími fyrir nýtt fólk að taka við. 

Ef þú ert tilbúinn að taka þátt í mótun framtíðar Maníu þá endilega sendu framboð þitt á netfangið koi1@hi.is fyrir 24 mars. Kosið verður um: 
-Formann 
-Fjóra stjórnarmenn, (varaformann, ritara, gjaldkera og vefstjóra) 
-Þrjá varamenn 

Bestu kveðjur.

21/3/2008

Muna fyrir 10. apríl!

Ágæti nemandi, 

þurfir þú á sérstökum úrræðum að halda í námi / próftöku við Háskóla Íslands vegna fötlunar, dyslexíu eða af öðrum ástæðum skaltu setja þig í samband við Náms- og 
starfsráðgjöf HÍ sem fyrst. 

Þeir sem hafa þegar gert samning um úrræði fyrir skólaárið 2007 til 2008 geta leitt þennan póst hjá sér. 

Síðustu forvöð til að leita eftir úrræðum vegna prófa er 10. apríl. 

Sími: 525-4315 
Netfang: radgjof@hi.is 

Upplýsingar um þjónustu NSHÍ er að finna á slóðinni: 

http://www.hi.is/page/namsradgjof_serurraedi 

NSHÍ 
Háskólatorg 3. hæð 

5/3/2008

Sjálfstyrking í námi

Mania þakkar öllum fyrir að mæta á frábæran fyrirlestur hjá Berglindi um áfallastreitu. 
Um leið viljum við minna á gagnlegt námsekið sem er á vegum Náms- og starfsráðfjafar H.Í. 
Sjá auglýsingu: 

Sjálfsmat hefur áhrif á líðan í námi, starfi og persónulegu lífi. Lágt sjálfsmat getur ýtt undir kvíða og vanmátt í námi. Á námskeiðinu greina nemendur eigið sjálfsmat og læra að byggja upp raunhæft sjálfsmat. Þeim er jafnframt leiðbeint um 
leiðir til að takast á við kvíða og sjálfsgagnrýni í tenglum við nám og próftöku.  
Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Ragna Ólafsdóttir sálfræðingur og Hrafnhildur V. Kjartansdóttir náms- og starfsráðgjafi. 

Námskeiðið hefst miðvikudaginn 12. mars kl. 13:30 - 15:30 og er í fimm skipti. Verð er kr. 5.000. 
Skráning og greiðsla fer fram á þjónustuborði Háskólatorgs. Námskeiðið fer fram á 3. 
hæð Háskólatorgs. 

kv. Manía 

 

11/2/2008



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri