Þunglyndi er alvarleg
röskun sem getur lagst á alla. Þunglyndi fer ekki í manngreinarálit,
allir geta orðið þunglyndir, ungir og aldnir, konur og karlar, óháð
stétt og stöðu. Á Íslandi þjást 12-15 þúsund manns af þunglyndi á
hverjum tíma. Þótt þunglyndi sé svo algengt gerir fólk sér oft sér
litla grein fyrir eðli þess og þar gætir oft misskilnings.
Þunglyndi er ekki merki um dugleysi, ekki fremur en sykursýki eða of
hár blóðþrýstingur.
Þunglyndi hefur margvísleg einkenni, sem öll
hafa í för með sér að draga úr lífsgleði og framtaki, lækka geðslag,
hægja á hugsunum og atferli. Allt þetta dregur úr þreki einstaklings
til að sinna daglegum skyldum, rækta fjölskyldu og vini.
Ef
þunglyndið greinist ekki leiðir það til óþarfra þjáninga og viðvarandi
röskunar á starfsgetu og lífsnautn. Þegar verst lætur getur þunglyndið
stefnt lífi sjúklings í óefni, jafnvel sjálfsvígshættu.
Landlæknisembættið hefur starfrækt verkefnið Þjóð gegn
þunglyndi síðan vorið 2003. Hægt er að kynna sér verkefnið á síðu Landlæknis. Slóðin er: http://www.landlaeknir.is/Thjodgegnthunglyndi
17/4/2009
Aðalfundur stjórnar Maníu var haldinn í gær, 27.mars. Ný stjórn var kjörin og hana skipa eftirfarandi:
Berglind Óladóttir formaður
Sesselja María Mortensen varaformaður
Olga Jenný Gunnarsdóttir ritari
Ragnheiður J. Sverrisdóttir gjaldkeri
Guðmundur D. Haraldsson vefstjóri
Ellen Dögg Sigurjónsdóttir meðstjórnandi
Félagið býður Olgu, Guðmund og Ellen velkomin til starfa.
28/3/2009
Hinn 22.febrúar sl. var svokallaður geðspekivefur HÍ opnaður formlega. Markmið Geðspekivefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Vefnum
er ætlað að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, geðröskunum, áhættuþáttum
og meðferðarúrræðum og stuðla þannig að geðheilbrigði.
Manía fagnar opnun síðunnar og vonar að hún komi fólki að góðum notum.
Slóðin er: http://ged.hi.is/
27/3/2009
Þann 27.mars nk. verður kosið í nýja stjórn hjá félaginu. Við leitum að áhugasömu fólki sem er tilbúið að taka þátt í starfi félagsins og efla þannig geðvernd innan Háskóla Íslands. Ýmislegt spennandi er framundan hjá og því kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á málefninu að bjóða sig fram til forystu.
Áhugasamir sendi framboð sitt eða fyrirspurnir á netfangið berglind@mania.is
Kosið verður um:
-formann
-fjóra stjórnarmenn (varamann, ritara, gjaldkera og vefstjóra)
-þrjá varamenn
Fundurinn verður haldinn í stofu 222 í Aðalbyggingu HÍ og hefst klukkan 13:30.
Bestu kveðjur,
stjórn Maníu.
13/3/2009
Nýrri
Eldri