Athyglisverð grein

Hér er hlekkur á athyglisverða grein sem ber heitið: How to increase serotonin in the human mind without drugs. 

20/10/2009

Hafa Íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

Niðurstöður birtar úr einni stærstu alþjóðlegu rannsókn sem gerð hefur verið á þessu sviði.

Tökum öll þátt í umræðum um framtíðarsýn og stefnumótun!!

Þann 3.nóvember 2009 er fyrirhuguð ráðstefna sem mun fjalla um fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál frá sjónarhorni félagsfræði, geðlæknisfræði og notenda. Megin tilgangur ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr nýlegri könnun á viðhorfum Íslendinga til geðrænna vandamála en að rannsókninni standa þau Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston University og Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Hugarafl, Geðlæknafélag Íslands, Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands.

Viðhorfskönnunin er hluti af alþjóðlegri rannsókn sem framkvæmd var í 15 þjóðlöndum.  Könnunin var lögð fyrir árið 2006-2007, en farið var í heimsókn til rúmlega 1.000 Íslendinga. Í rannsókninni er spurt um viðhorf svarenda til eðli og orsaka geðrænna vandamála, fordóma gangvart geðrænum vandamálum, notkun á heilbrigðisþjónustu, og um ábyrgð ríkisvaldsins á því að bregðast við geðrænum vandamálum.

Á ráðstefnunni verður fjallað um helstu niðurstöður fyrir Ísland, þar sem metið verður umfang og eðli fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál. Jafnframt munum við setja niðurstöðurnar fyrir Ísland í alþjóðlegt samhengi með því að bera þæ rsaman við niðurstöður frá hinum 14 löndunum. 

Að lokinni kynningu niðurstaðnanna munu aðilar sem koma að geðheilbrigðismálum á Íslandi tjá sig um niðurstöðurnar og um fordóma á Íslandi. Ráðgert er að fram fari umræða þar sem að fræðimenn, notendur, heilbrigðisstarfsmenn og stefnumótendur munu fjalla um hvað niðurstöðurnar þýða fyrir íslenskt samfélag og þá sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Þar verður sérstakri athygli beint að starfi Hugarafls geng fordómum, en þau samtök hafa markvisst unnið að því að auka þekkingu almennings og ráðamanna m.a. með fræðslu, greinaskrifum, og þátttöku í stefnumótun.

Ráðstefnan verður  haldin í Hátíðarsal Háskóla Íslands milli klukkan 13 og 16 og þar verður einnighægt að nálgast skýrslu um niðurstöðurnar.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!

12/10/2009

Forvarna- og fræðslusjóðurinn ÞÚ GETUR!

N.k miðvikudag 30.september verða styrktartónleikar sjóðsins í Bústaðakirkju. Sjóðurinn hefur að markmiði að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða, að efla nýsköpun og bætta þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og draga úr fordómum í samfélaginu. Á tónleikunum mun sjóðurinn í fyrsta sinn veita styrki en þá hljóta í ár 5 námsmenn. Einnig verður veittur hvatningastyrkur til starfsmanns í heilbrigðisþjónustunni sem lagt hefur til þýðingamiklar nýjungar í geðheilbrigðisþjónustunni.

Miðaverð er kr. 2900 en miðar eru seldir í verslun Lyfju í Lágmúla 5. Þeir verða einnig seldir við innganginn. Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni www.stress.is  
24/9/2009

Alþjóða heilbrigðisdagurinn 10. október

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert. Yfirskrift dagsins á Íslandi í ár er: öflugri og aðgengi- legri geðheilbrigðisþjónusta. Haldið verður upp á daginn í göngugötunni í Mjódd og í húsakynnum Hugarafls að Álfabakka 16, laugardaginn 10. október frá kl. 13:00 – 16:30

Dagskráin byrjar með opnunarávarpi heilbrigðisráðherra og síðan verður boðið upp á fjölbreytt skemmti- og tónlistaratriði fyrir börn og fullorðna. Kynningarbásar verða í göngugötunni þar sem gestir geta fengið margskonar upplýsingar er varða geðheilbrigðismál. Einnig verður boðið upp á veitingar á vægu verði. Heimasíða dagsins er http://www.10okt.com/ Heimasíða WFMH: http://www.wfmh.org/00WorldMentalHealthDay.htm

Manía verður á staðnum með kynningu á félaginu.

24/9/2009

Jafnréttisdagar 2009

Í gær hófust jafnréttisdagar í Háskóla Íslands. Nánar um dagskrá daganna:http://www.hi.is/is/skolinn/jafnrettismal

Manía verður með kynningu á félaginu í dag, fimmtudag í Fjöru, Stakkahlíð milli klukkan 12 og 13 og á morgun, föstudag, á háskólatorgi á sama tíma.

24/9/2009



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri