Fyrirlestur um meðvirkni

Manía kynnir fyrirlestur Kristjönu Millu Snorradóttur á þriðjudaginn 23. febrúar í Öskju, stofu 131, kl. 12:00.

Kristjana Milla Snorradóttir iðjuþjálfi hefur mikla reynslu af því að starfa með börnum sem glíma við sálfélagslega erfiðleika. Hún hefur m.a. starfað á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans BUGL, Meðferðarteymi Heilsugæslunnar í Grafarvogi og fyrir Krabbameinsfélagið. Í dag starfar Milla hjá ferðaskrifstofunni Vesturferðum.
 
Milla mun fjalla um það að eiga fjölskyldumeðlim eða náin ástvin sem glímir við alkóhólisma eða aðra geðröskun. Fyrirlesturinn á þó ekki síður við um það að vera aðstandandi einhvers sem glímir við krabbamein, flogaveiki eða annan langvinnan sjúkdóm. Að vera aðstandandi veldur oft óöryggi og varnarleysi. Fólk getur upplifað mikinn ótta og hegðunarmynstur og hlutverk geta brenglast. Komið verður inn á hugtakið meðvirkni og hvaða bjargráð standi fólki, sem stendur í þessum sporum, til boða.
 
Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn standi yfir í um 45 mínútur.
 
19/2/2010

Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi

Svefnleysi er ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til læknis. Fjöldi Íslendinga þjáist af langvarandi svefnleysi og er fólki undantekningarlaust gefið svefnlyf. Svefnlyf bæta þó ekki svefn til lengri tíma litið og valda ýmsum aukaverkunum.  Rannsóknir sýna að hugræn atferlismeðferð við svefnleysi er árangursríkari og öruggari en svefnlyf. Í Mars 2009 skrifaði Haukur Sigurðsson sálfræðingur pistil í vefrit sálfræðingafélagsins um hugræna atferlismeðferð við svefnleysi, sjá hér.  

14/2/2010

Geðheilbrigði barna - fræðslubæklingar

 
Út eru komnir tveir fræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.

 

Geðheilsa barnsins þíns

Geðheilsan þín skiptir máli

Nánari upplýsingar má finna á vef landlæknis

 

26/1/2010

Hvað get ég gert við of miklar áhyggjur?


Manía, í samstarfi við Náms- og starfsráðgjöf HÍ, kynnir: Fimmtudaginn 19. nóvember mun Árný Ingvarsdóttir sálfræðingur halda erindi um áhyggjur og kvíða hjá börnum, auk þess að fjalla um bókina "Hvað get ég gert við of miklar áhyggjur?", nýútkomna  sjálfshjálparbók fyrir áhyggjufull og kvíðin börn.

Bókin hjálpar börnum og foreldrum þeirra að skilja hvað einkennir hugsun barna með áhyggjur og kvíða og hvernig áhyggjur eru tilkomnar, auk þess að bjóða lausnir sem reynst hafa gagnlegar til að draga úr þeim. Bókin byggir á hugmyndarfræði hugrænnar atferlismeðferðar og inniheldur m.a. verkefni fyrir börnin, sem og leiðbeiningar og fræðslu fyrir foreldra. Þessi gagnvirka sjálfshjálparbók er heilsteypt úrræði til að fræða, hvetja og styrkja börn í því að vinna bug á ofvöxnum áhyggjum.

Höfundur bókarinnar er Dr. Dawn Huebner, en þýðendur og útgefendur eru sálfræðingarnir Árný Ingvarsdóttir og Thelma Gunnarsdóttir.

Erindið verður haldið í stofu 131 í Öskju og hefst kl.12:00.  Að erindinu loknu verðu bókin til sölu á tilboðsverði.

Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn standi yfir í um 45 mínútur.

Hlökkum til að sjá sem flesta,
stjórnin.

15/11/2009

Þáttur umhverfis við myndun átraskana

 
Manía stendur fyrir fyrirlestri, fimmtudaginn 5. nóvember í Öskju, stofu 131, klukkan 12:00. Fyrirlesari er Sigrún Daníelsdóttir.
 
Sigrún Daníelsdóttir er sálfræðingur í átröskunarteymi Barna- og unglingageðdeildar LSH. Fyrirlestur hennar ber titilinn "Þáttur umhverfis við myndun átraskana" og fjallar um hvernig nútímaumhverfið ýtir undir óánægju með líkamsvöxt, fitufordóma og átraskanir og hvað við getum gert til að breyta þessu. 
 
Gert er ráð fyrir að fyrirlestur Sigrúnar standi yfir í um 45 mínútur.

Hér er hlekkur á blogg Sigrúnar.

Kveðja, stjórnin. 5/11/2009



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri