Sjálfshjálp við kvíða

Kæri háskólanemi.

Kvíði er eðlileg tilfinning sem allir kannast við. Háskólanemar þekkja vel að í krefjandi námi getur ýmislegt valdið kvíða. Yfirleitt varir hann stutt og hefur ekki áhrif á líf okkar eða hegðun. Erfiðara reynist þegar menn fyllast óeðlilegum kvíða eða sjúklegum.

Sjálfshjálparhópar hafa reynst gagnlegir til að takast á við margvíslegan geðrænan vanda.  Slíkir hópar byggjast á því að fólk með samskonar vandamál hjálpast að með því að deila reynslu sinni og læra af reynslu annarra.

Manía hefur skipulagt sjálfshjálparhóp fyrir háskólanema sem glíma við kvíða. Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem finna að kvíðinn torveldar þeim lífið.  Ekki þarf sérstaka greiningu til að sækja fundina. Tveir kandídatsnemar, á lokaári, í sálfræði munu stýra hópnum.

Fundir verða haldnir á miðvikudögum klukkan 17. Fundirnir hefjast 17. mars næstkomandi. Þátttaka er ókeypis.

Skráning og nánari upplýsingar: mania@mania.is

 

10/3/2010

Aðalfundarboð

Þann 18. mars verður kosið í nýja stjórn Maníu. Við leitum að áhugasömu fólki sem er tilbúið að taka þátt í starfi félagsins og efla þannig geðheilbrigði innan veggja Háskóla Íslands. Á þessu starfsári hefur félagið m.a. staðið fyrir fræðslufyrirlestrum og skipulagt sjálfshjálparhóp fyrir nemendur með kvíða, en starfssemi hópsins hefst 17. mars. Ýmislegt spennandi er fram undan hjá félaginu. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á málefninu að bjóða sig fram til forystu.

Kosið verður um:
-Formann
-Fjóra stjórnarmenn (varaformann, ritara, gjaldkera, vefstjóra)
-Þrjá meðstjórnendur

Fundurinn verður haldinn í stofu 217 í Stapa (þar sem Bóksala Stúdenta var áður til húsa) og hefst klukkan 15:00.

Ef þú hefur áhuga á taka þátt í skemmtilegu og spennandi starfi þá endilega sendu framboð þitt eða fyrirspurnir á netfangið mania@mania.is

 

7/3/2010

Fyrirlestur um félagsfælni

Manía kynnir fyrirlestur um félagsfælni, þriðjudaginn 9. mars í Öskju, stofu 131, kl. 12:00.
 
Sóley D. Davíðsdóttir og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar (KMS) munu fjalla um eðli og afleiðingar félagsfælni sem er algengasta kvíðaröskunin, og hvernig vandi af þessum toga er meðhöndlaður hjá KMS.  

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og einn stofnenda Kvíðameðferðarstöðvarinnar.  Sóley útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og starfaði við geðsvið Landspítala –háskólasjúkrahúss frá 2001 til 2007. Hún hefur sérhæft sig í meðferð við kvíðaröskunum, sérstaklega félagsfælni. Sóley starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar rannsóknum, greiningarviðtölum og einstaklings- og hópmeðferð. Sóley lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands og Oxford Therapy Center árið 2008.

Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir er sálfræðingur og annar stofnenda Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sigurbjörg útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskólanum í Bergen í ársbyrjun 2003 og starfaði við geðsvið Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) frá útskrift árið 2003-2007. Sigurbjörg hefur lagt sérstaka áherslu á að sinna hugrænni atferlismeðferð í hópum við ýmsum vandkvæðum, s.s. félagsfælni, ofsakvíða, þunglyndi og áfengis-og vímuefnaánetjun. Sigurbjörg starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar greiningu, einstaklings- og hópmeðferð, rannsóknum, handleiðslu og daglegum rekstri stöðvarinnar.

Hlökkum til að sjá sem flesta

 

6/3/2010

Fyrirlestur um meðvirkni

Manía kynnir fyrirlestur Kristjönu Millu Snorradóttur á þriðjudaginn 23. febrúar í Öskju, stofu 131, kl. 12:00.

Kristjana Milla Snorradóttir iðjuþjálfi hefur mikla reynslu af því að starfa með börnum sem glíma við sálfélagslega erfiðleika. Hún hefur m.a. starfað á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans BUGL, Meðferðarteymi Heilsugæslunnar í Grafarvogi og fyrir Krabbameinsfélagið. Í dag starfar Milla hjá ferðaskrifstofunni Vesturferðum.
 
Milla mun fjalla um það að eiga fjölskyldumeðlim eða náin ástvin sem glímir við alkóhólisma eða aðra geðröskun. Fyrirlesturinn á þó ekki síður við um það að vera aðstandandi einhvers sem glímir við krabbamein, flogaveiki eða annan langvinnan sjúkdóm. Að vera aðstandandi veldur oft óöryggi og varnarleysi. Fólk getur upplifað mikinn ótta og hegðunarmynstur og hlutverk geta brenglast. Komið verður inn á hugtakið meðvirkni og hvaða bjargráð standi fólki, sem stendur í þessum sporum, til boða.
 
Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn standi yfir í um 45 mínútur.
 
19/2/2010

Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi

Svefnleysi er ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til læknis. Fjöldi Íslendinga þjáist af langvarandi svefnleysi og er fólki undantekningarlaust gefið svefnlyf. Svefnlyf bæta þó ekki svefn til lengri tíma litið og valda ýmsum aukaverkunum.  Rannsóknir sýna að hugræn atferlismeðferð við svefnleysi er árangursríkari og öruggari en svefnlyf. Í Mars 2009 skrifaði Haukur Sigurðsson sálfræðingur pistil í vefrit sálfræðingafélagsins um hugræna atferlismeðferð við svefnleysi, sjá hér.  

14/2/2010



Nýrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Eldri